Málaskrá ákæruvaldsins
RS: 10/2017
- Skrá skal mál í málaskrá ákæruvaldsins þegar ferillinn ákærumeðferð er skráður á mál í málaskrá lögreglu.
- Með ákærumeðferð er átt við málsmeðferð ákæranda sem leiðir til útgáfu ákæru, niðurfellingar máls, niðurfellingu saksóknar eða skilorðsbundinnar ákærufrestunar.
- Skráning á ferlinum ákærumeðferð skal fara fram um leið og mál kemur til meðferðar hjá ákæranda.
- Ákærandi sem fer með mál eða starfsmaður á skrifstofu ákæranda, sem forstöðumaður hefur falið það verkefni, skráir mál til ákærumeðferðar.
- Skráning ferla í málaskrá ákæruvaldsins skal fara fram sem næst rauntíma.
- Heimilt er að halda skrá um mál sem er til meðferðar hjá ákæranda í öðru málaskrár- eða skjalaskráningarkerfi samhliða skráningu í málaskrá ákæruvaldsins.
- Skrá skal að lágmarki eftirfarandi ferla í málaskrá ákæruvaldsins:
- Úthlutun til starfsmanns
- Saksóknarákvörðun (ákæra, niðurfelling, niðurfelling saksóknar eða skilorðsbundin ákærufrestun)
- Þingfesting
- Skrá skal þingfestingardag
- Skrá skal málsnúmer í héraðsdómi
- Málsmeðferð fyrir héraðsdómi
- Skrá skal tegund málsmeðferðar (viðurlagaákvörðun, játningarmál, aðalmeðferð)
- Aðrir ferlar
- Skrá skal aðra ferla eftir því sem við á undir rekstri máls eða aðra meðferð þess hjá ákæranda (framhaldsákæra, frávísun frá héraðsdómi, fallið frá ákærulið o.fl.)
- Heimilt er að skrá viðbótarupplýsingar í athugasemdareit ef það horfir til frekari skýringar á meðferð eða stöðu máls. Gæta skal vandvirkni í orðalagi.
- Lokastig skráningar á ferlum hjá lögreglustjórum og héraðssaksóknara eru eftirfarandi:
- Málsmeðferð í héraði – undirflokkur (viðurlagaákvörðun, játningarmál eða aðalmeðferð).
- Niðurfelling máls.
- Niðurfelling saksóknar.
- Skilorðsbundin ákærufrestun
- Skrifstofa ríkissaksóknara annast skráningu ferla eftir að mál hefur verið dómtekið fyrir héraðsdómi.
- Skrifstofa ríkissaksóknara annast skráningu ferla vegna kærðra ákvarðana lögreglustjóra eða héraðssaksóknara um lokaafgreiðslur mála.
- Þegar gefin er út ein ákæra vegna brota sem skráð eru í fleiri en einu máli skal sameina málin í málaskrá ákæruvaldsins undir einu af LÖKE-málsnúmerunum.
- Lögreglustjórar og héraðssaksóknari skulu skanna inn í LÖKE skjöl sem tilheyra máli, enda hafi þau ekki þegar verið skráð með rafrænum hætti. Með skjölum er t.d. átt við áverkavottorð, matsgerðir, reikninga, niðurfellingarbréf, ákærur, bréf til dómstóla, bréfasamskipti við lögmenn eða stofnanir o.fl.
Sigríður J. Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari